Aðalvalmynd

Afríkufarar

Heimferdardagurinn æsilegi!

27. júní 2008 klukkan 00:55

Þann 23. júní var loks runninn upp heimferðardagurinn okkar. Við vorum búnar að eyða miklum skipulagshæfileikum í að pakka niður í 2 töskur í stað 3ja kvöldið áður og ákváðum að gefa hjálparstofnun fyrir innflytjendur tjald og svefnpokana okkar. Allt í töskur og við nokkuð góðar með okkur. Vaknað kl. 7 og farið í að þrífa bíl sem var orðinn nokkuð skrautlegur. Hittum vin okkar David sem hélt því fram að hann hefði passað bílinn fyrri nóttina og ég varð að standa við orð mín og borgaði honum 30 rand sem er svona 300 kr. Þetta með bílapassara og Suður-Afríku er svoldið óljóst, þeir líta allir út eins og rónar en eru í einhverjum vestum og maður veit ekkert hvort verið að að hafa mann að fífli eða hvort verið sé að vakta bílinn manns.

Eftir skyndiþrif var farið á röltið á Long-street og síðustu gjafir keyptar og kaffi og frönsk horn í morgunmat. Um hádegið ákváðum við að fara í leiðangur að finna hengirúm sem átti að kaupa, það fengist helst í stórum verslunarmiðstöðum, svo við fundum eina á Strandstreet sem var svo vinalegt og heima-legt nafn að við skelltum okkur þar í laust stæði og skokkuðum í mollið. Eftir að Silja var búin að fá aaafar ítarlegar upplýsingar hvar við fengjum hengirúmið (sem fékkst ekki í mollinu) fórum við til baka, bjartsýnar að ná þessu þar sem kl. var bara um 13:00 og við þyrftum ekki að mæta út á völl fyrr en um 17:00.

Þegar við komum að bílnum sáum við að það var búið að brjóta aðra aftari hliðarrúðuna og bakpokinn minn stóri og litli voru horfnir, en hin stóra taskan og litli bakpokinn hennar Silju voru eftir. Ég áttaði mig á því að þetta var djúpur skítur, því vegabréfin okkar og farmiðarnir voru í minni tösku. Þetta var náttúrulega algjört sjokk og ég stökk strax af stað að ná í lögguna en löggustöðin var í 200 m. fjarlægð, og Silja passaði bílinn á meðan. Tvær rólyndis löggur röltu í hægðum sínum á eftir mér og sögðu að ég þyrfti að keyra bílinn á stöðina svo hægt væri að taka fingraför og þ.h. en ég var ekki í stuði fyrir að keyra bíl og bað lögguna að keyra hann. Jú ekkert mál, en stuttu seinna drapst á bílnum og hann fór ekki í gang, einmitt það sem við þurftum núna. Löggan var heillengi að brasa við að koma bílnum í gang en ekkert gekk, svo hann vildi fá mig til að hringja í bílaleiguna og fá upplýsingar. Þegar hann er svo fær leiðbeiningar frá bílaleigunni heyri ég að þeir segja honum að setja bílinn í hlutlausann áður en hann startar. Ég ætlaði ekki að trúa þessu, lögga sem kann ekki að aka beinskiptum bíl. Ekki datt mér í hug að athuga hvort laganna vörðurinn stæði á kúplingunni. Allavega komumst við á stöðina.

Lögreglustöðin var ekki aðlaðandi vinnustaður, meira eins og fangelsi. Þarna var skýrslutaka og hálfsjötugur kall merktur Inspector hóf skýrslutöku handskrifandi með skriftarhraða eitt orð á mínútu (nú er ég ekki að ýkja) Þetta tók sem sé klst. þetta eina handskrifaða blað en fyrr var ekkert hægt að gera. Það var ekki hægt að hringja þarna og þeir sögðust ekkert geta gert fyrir okkur annað en að skrá þetta sem innbrot. Við vorum ekki hressar með þetta og Silja hélt pistil yfir þeim um hverskonar fólk þeir væru sem gætu ekki einu sinni leift okkur að nota síma hjá sér, en við vorum tæpar á batteríi í gsm. og þar sem Gunnar og Snúlla voru á fullu heima í Rvk og Hólmavík að finna passanúmer, flugnúmer, símanúmer í sendiráðum og ræðismönnum, þorðum við ekki að nota símana okkar mikið. Eftir mikið væl og röksemdarfærslur kom gaur sem var allt öðru vísi stemmdur. Hann fór með okkur á aðra löggustöð þar sem nú þurfti að keyra málið inn í tölvu og fá "case-number", hann keyrði bílinn okkar og þar gekk allt hraðar. Við náðum í ræðismanninn sem sagði okkar að koma eh. út í rassgat með passamyndir. Sem betur fer var stutt í ljósmyndastofu, en aðrar eins rauna passamyndir hef ég ekki séð, það vantaði bara fangabúninginn á okkur.

Góði gaurinn fór með okkur aftur á gömlu tölvulausu löggustöðina og á leiðinni sannfærði ég hann um að keyra okkur til ræðismannsins þar sem við næðum þessu ekki á venjulegum ökuhraða á háannatíma. Hann sagðist ætla athuga hvort það gengi og fyrir rest fórum við í öðrum af tveim bíl sem var með bláum ljósum. Nú fór allt að gerast, og við fórum í æsilega ferð með tveimur löggum á 140-150 km. hraða heim til ræðismannsins. Nú var bara farið yfir á rauðu, svoldið upp á umferðareyjar og á fullu eftir 4 akreina hraðbraut og umferðin bara klofnaði og við í gegn enda öll ljós og allar sírenur á.  Ræðismaðurinn sagði að við þyrftum að fara á skrifstofuna en þangað var hálftíma akstur, og aumingja hann þurfti að elta okkur á þessum hraða í gegnum ótrúlegustu umferð. Á skrifstofunni hófst mikil taugatrekkjandi bið eftir e-maili frá Íslandi um hvernig hann ætti að gera þetta því hann var nýtekinn við starfinu, fékk fyrstu íslensku neyðarvegabréfin 2 dögum fyrr og kom sjálfur daginn áður frá Frakklandi, svo þetta var slembilukka þrátt fyrir allt. Nefnilega tveim vikum fyrr var sendiráði í Pretoríu sem er um 1500 km frá Cape Town og ekki hefðum við skroppið þangað. Gott að þeir lögðu það niður og sendu sendiherrann til Moskvu!

John, ræðismaður fixaði þetta þó allt með stakri prýði og ótrúlegri ró miðað við tímapressu, e-mailið kom á elleftu stundu, og hann falsaði einhvern pappír sem hann fékk lögguna til að skrifa upp á vegna þess að hann má ekki gefa út neyðarvegabréf á barn undir 18 ára sem er ekki með BÁÐA foreldrana með. Það má segja að hann hafi skyndi-ættleitt Silju og það dugði. Nú þá var eftir að fara út á völl og þessar yndislegu löggur buðust til að bíða þennan klukkutíma og keyrðu svo með STÆL út á flugvöll með okkur. Ég verð að segja að bílstjórinn var hrikalega góður að keyra og hvernig hann komst á milli bíla þar sem bilið var einfaldlega ekki nóg, en hann gerði það samt. Við kvöddum þessa heiðursmenn á flugvellinum, annar svartur Góði gæinn okkar og hinn stór og hvítur, báðir í skotheldum vestum með 2 skammbyssur hvor.

Á vellinum hófst nýtt taugastríð. Ég var bara með bókunarnúmerið á flugið (sem betur fer var þetta e-ticket) þökk sé henni Snúllu minni sem reddaði þessu í tölvunni minni heima. En nú passaði ekki passanúmerið við miðann, enda heitir og nýir passar. Fyrir rest reddaði kretitkortið mitt þessu því ég keypti miðana með því og þannig hægt að rekja þetta. Við vorum ógó glaðar þegar við komumst loks í gegn. Reyndar var svoldið þras yfir pössunum og þurfti að sýna lögregluskýrsluna til að staðfesta söguna.

Í fríhöfninni var ég voða glöð að finna strútsegg til sölu því ég hafiði keypt slíkt fyrir Báru en því var stolið sem og skrítna krókódílapate-inu okkar, þannig að við keyptum ný paté, svona sebra, krókódíla og kudu-hjartardýra. Þetta var svona smá plástur fyrir okkur og við fórum í okkar 12 tíma flug. Ég sat við hliðina á roskinni S-Afrískri konu sem sagði að maður legði aldrei bíl nema þar sem væri borgað því þar væri vaktað og skildi ekki nokkurn hlut eftir í bíl sjáanlegan, keyrði alltaf með læstar hurðar og rúður uppi og hefði veskið sitt undir sæti á meðan ekið væri annars gæti maður á von á svona rúðubroti og veskið tekið bara við hliðina á manni. EKki var Hertz bílaleiga að miðla þessum upplýsingum til okkar svona fyrirfram ónei. Jæja ég nýtti mér ótakmarkað magn af áfengi sem British Airways bíður upp á ókeypis og náði mér niður um miðnætti.

Í London þurftum við að skipta um flugvöll, ég gat bara ekki munað hvort Iceland Express flygi frá Gatwick eða Stanstead svo ég ræsti Gunnar greyið heima á Íslandi til að spyrja, ég var jú ekki með neina pappíra um flugið okkar. Jú rúta á Stanstead og vonað að Gunnar hefði rétt fyrir sér og jú hann klikkar ekki elsku kallinn. Hér var ekkert mál að bóka sig inn með handskrifuð vegabréf og ekkert annað og beint í gegn...sko þangað til í öryggiseftirlitinu. Hér var ýmislegt úr snyrtibuddunni sett í plast og ég hafði passað að ekkert væri meira en 100 ml. en þá fundu þeir paté-ið góða. Jú paté væri vökvi og þar sem það var 110 ml. í dósunum var ekki smuga að þrasa þetta við þá. Silja var svo reið að hún grýtti einni paté-dósinni næstum í gaurinn og ég sá lítil horn lyftast upp úr hausnum á henni í gegnum afrísku flétturnar.

Ég reyndi að róa stelpuna, og við fengum okku kakó og svona. En réttlætiskennd Silju var misboðið og þó hún hafi alls ekki verið spennt fyrir krókódílapatéi var hún alveg brjáluð út af þessu. Fyrst stolið af okkur og svo tekið af okkur það sem við keyptum í staðin. Eftir smá stund fór hún á klósettið og kom ekki aftur.
Nú var komin melding "go to gate" en engin Silja. Í stuttu máli þá fór hún aftur og fékk öryggisverðina til að opna læstar ruslatunnur, finna þá réttu, ná í paté-in og þrasaði við 5-6 menn þar sem hún bauð þeim ýmsa valkosti um að éta paté-ið á staðnum, opna það og fjarlægja 10 ml. úr hverri dollu, eða hvort væri meira vatn í paté-i eða brauði, en stóru brauði?  Á endanum fékk hún að setja þetta í bakpokann sinn og hlaupa með þetta til baka og tékka þetta inn aftur sem almennan farangur. Á meðan var ég í stress kasti að reyna að senda henni sms um að koma NÚNA með síma með ónýtum skjá. (ég endurvinn gsm síma sem aðrir hafa dæmt ónýta). Til baka kom sigurreif stelpa. Segið svo að nettur skammtur af frekju með stórum skammti af rökþrasi og réttlætiskennd komi ekki stundum að gagni.  Heimferðin var þreytt en fallegt veður og við trúðum því varla að þetta væri að takast.

Mikið var gott að hitta Gunnar og Báru á vellinum og haldið beint í sólina í Laugardalslauginni.


Ég er að fara að setja inn helling af myndum úr ferðinni ef einhvern langar að sjá þær. Ps. við erum ekki enn farin að smakka krókódílapaté-ið ógurlega. Það verður að gera helgistund úr þessu eftir alla fyrirhöfnina!
kv.
Ásta

Cape of good hope - Cape point

22. júní 2008 klukkan 20:00
Styttsti dagur arsins her i gaer en sa lengsti heima, skritid. En vid forum bara ad sofa snemma a tessum stutta degi. Tad er reyndar alveg otrulegt hvad madur tarf ad sofa herna, enda svartamyrkur um halfsex, serstaklega Silja. Hun tarf ad sofa 12 tima a nottu og 3 fegurdarblundi helst yfir daginn, en eg verd ekki fallegri svo eg vaki bara og keyri yfirleitt. 
Vid voknudum fyrir allar aldir (enda sofnadar kl. 10) og forum i leidangur ut a Godravonarhofda, tad gekk ekki trautarlaust og okkur tokst ad villast svoldid, m.a. i smabae tar sem vid skelltum okkur i morgun gospelmessu kl. 9.30 og tar sungum vid eins og englar ad sjalfsogdu, meira ad segja a afrikans. Ta var farid a sunnudagsmarkadinn tar sem vid keyptum allskonar misgagnlegt dot, og Silja kolfell fyrir tofrabrogdum en fekk ekki lan hja mer til ad kaupa tofrakit meistarans a skriljon, nei annars bara 1500 kr. en tad er bara helling her svo skvisan keypti bara i buid i stadin. Jaeja, eftir herlegan Thai hadegisverd, fundum vid leidina ut a Cape point sem er merkilegur stadur fyrir tad ad tad er visindarannsoknir tarna i sjavarliffraedi. Atlandshafid er nefnilega vestanmegin og 14 gradur en Indlandshafid austanmegin og 20 gradur. Tetta veldur allskonar vedurveseni og straumarugli sem eg aetla ekki ad fara ut i her (bara af tvi ad Silja er a moti tvi). A Cape point eru tveir flottir vitar (jibby) og vid turftum ad klongrast margar troppur, (Silju upplifun) eg meina skoppa upp orfaar troppur, og geggjad utsyni. Vid fengum glampandi sol og saelu bara fyrir Silju sem var i Husinu-a-Slettunni-kjol (en tad var hellidemba tegar vid logdum a stad) skipti. Silja tekur vid.
Asta

Tar sem mamma er buin ad frekjast til ad segja fra ollu sem vid erum buin ad gera i dag get eg nu litid sagt. Forum ju og sungum tarna lala og keyptum skran og drasl og eg heilladist af goldrum.. allt buid ad koma fram. Tyndumst og villtumst tar sem voru orfaar gotur og varla haegt ad villast. Borgudum okkur inni Hofda....punktinn og Godravonarhofda (eg vona tad) og eg turfti ad syna skilriki til ad sanna ad eg vaeri bara 15 ara. Tegar inn var arkad parkad saum vid fraendur mina. Fullt af litlum saetum (og storhaettulegum) baboon-um, sem er apategund. Teir sveifla ser inn um bilgluggann tinn ef hann er opinn og teir finna matarlykt, eta allt fra ter og drepa tig kannski i leidinni... huggulegt. Saum litil saet apa-born og apa eta lys af odrum apa. Alveg eins og mamma gerir alltaf vid mig tegar eg fae lus! Skyldleiki eda hvad? Flugum upp a nokkra kletta lett a faeti glaptum ut i loftid og renndum okkur nidur af teim aftur. Paeldum i briminu og saum edlu. Lusudumst i svarta thoku heim aftur til CapeTown og fundum aftur backpackers heimilid okkar. Hittum tar gamlan vin.. ja ekkert meira um tad. Forum sidan ut og komumst af tvi tegar vid lobbudum gotuna tar sem heimilid okkar er a (sem er naestum eina gatan sem vid hofum labbad her i Cape Town) i fjorda sinn ad flestir veitingastadir voru lokadir thannig vid atum pitu, mais og eitthvad drasl a Nandos eitthvad. Litid gaman ad segja fra tvi. Aetlum ad skoppa aftur heim til okkar til ad pakka ollum fotunum+ollu draslinu sem vid erum bunar ad kaupa i eina tosku hvor. Hvilikt rugl! Tyrftum ad minnsta kosti fjorar toskur... hvor. Mamma lika med sina indaelu supaasubah!trommu. En j'a nu er klukkan alveg ad verda tiu tarf nu ad fara heim ad sofa, ordin daudtreytt. Tad var nu eiginlega kominn svefntimi a mig fyrir svona 3 timum. Goda nott elskurnar minar og skemmtid ykkur vel i kuldanum a Islandi. Jammer fyrir ykkur ad vid hofum liklega verid i meiri kulda en tid.
Silja

Oudtshorn-Cape Town

21. júní 2008 klukkan 18:07
Sluppum ur fangelsinu og brunudum til Oudtshorn, tar sem 85 % af strutaraektun i heiminum a ser stad. Fyrst var brunad i Cango Caves sem eru otrulega flottir limestone (hvad er tad a islensku) hellar med dropasteinum og sulum. Mjog flottir, svo var fundinn svefnstadur og farid ad sofa.
-Asta

Tegar vid voknudum eldhressar og krumpadar morguninn eftir klukkan sjo (5 a islenskum tima) forum vid a Ostrich show farm. Fyrir ta sem skilja ekki hund i bala i ensku tydir tad synis-stutabyli. Aha akkurat. Tar forum vid i sma tur med leidsogn og fraeddumst og gaeddumst helling um struta. Trippid endadi med tveimur albinoum fra Islandi hangandi a strutsbaki. Mjog fyndid en gaman. Veit ekki hvort tad gleymdist ad segja fra tvi tegar vid forum i gaer og profudum ad eta strut. Jebb mamma fekk ser strutasteik og eg struta-kebab. Bragdast bara mjog eins og lamb, ekkert vont en ekkert afgerandi odruvisi eda gott. Jaeja tegar vid vorum algjorlega buin ad fa ad vita allt um strutana og standa ofan a eggjunum teirra og svona ta keyrdum vid hingad, til Cape Town, Kaapstad, Hofdaborgar, hvad sem tu vilt kalla tetta. Eg sem er adstodarbilstjori og kortasnillingur ferdarinnar styrdi for okkar til langastraetis tar sem vid fundum Kastalabakpokaferdalangagististadapleis. Uff long setning. Allavega tegar vid vorum bunar ad taka inn toskurnar og sleppa mogulega vid ad borga fyrir bilapossun hja honum David vini okkar tvi vid vorum hraeddar um ad hann vaeri eins og hann Luckyk, hinn vinur okkar, forum vid ut i matarleit. Eftir langa leit fundum vid loksins stadinn sem badar saettu sig vid, MEXICANO. Lentum tar i hladbordi og atum eins og svin, sem endadi med litlu, storu stelpunni aelandi inn a klosetti. Fjor tad. Erum nuna adeins ad lata vita af okkur a gler-web&e-mail computeria med tvi ad blogga. Tar sem tad er 5 R fyrir hverjar 12 min. ta held eg ad eg dragi hana muttu i burtu hedan nuna. Takk fyrir mig og sjaumst hress og kat eftir 3 daga... ohh tetta er ad verda buid. Eg a eftir ad sakna Afriku, tangad til eg kem aftur hingad. Langar i rauninni ekkert ad haetta strax ad blogga. Mamma er dottin i einhvern baeklingalestur. Lit ut um gluggann og vid mer blasir stort rautt skilti : ADULT WORLD med skrattahornum a. Langar ekki ad vita hvad fer fram tar inni. Skritid ad koma aftur hingad, ennta i sama landi og sja svona allt annad. Tessar evropsku borgir eins og Cape Town. Eiginlega allt hvitt folk. Eda storborgirnar Port Elisabeth og East London. Nokkrum kilometrum lengra og BUMM... strakofar og fataekleg hus. Allt svart folk... med haenur i plastpokum. En nog um tad i bili. Latum heyra fra okkur seinna. Bless :)

Silja

Gistum i fangaklefa!

19. júní 2008 klukkan 19:52
Jibby eg vann monapolyid! Eg klikka ekki i vidskiptunum. Vid erum sem sagt komin fra Coffee bay og ollu vonda kafffinu tar. Mamma klaradi trommuna og hun er med helling af tasuforum fra Johnny kruttinu. Brunudum hingad til Grahamstown og fundum gedveikt gistiheimili. Tetta er gamalt fangelsi i upprunalegri mynd og vid sofum i pinkulitlum eldgomlum fangaklefa. Mjog spes :) Tegar eg hossa mer i ruminu blikkar ljosid. Mjog fyndid. Eins og Gunnar segir: sidgaedisvari. Haha. En ja vid erum nuna bara ad tjilla a barnum og eg ad blogga med Nothing Else Matters i botni herna vid hlidina a mer. A mrg aetlum vid ad reyna ad komast til Oudtshorn a strutabylid og skoda einhverja flotta hella. Turfum sidan ad reyna komast aftur til Cape Town a laugardaginn og aetlum ad reyna tefa uppi stad sem haegt er ad komast a filsbak. Erum annars bara mjog godar. Fekk frettir ad heiman ad tad vaeri kvennafridagurinn. Til hamingju allar konur! Greyid mamma fekk ekkert fri i dag, keyrandi marga marga klukkustundir. Svekkjandi, ha!
Laet tetta gott heita og leyfi mommu ad taka vid pennanum... eda lyklabordinu kannski frekar. Sjaumst! :D

Silja

Ja til hamingju allar kvennsur. Tad er kaldhaednislegt ad gista i fangelsi i Sudur Afriku a kvennafridaginn. Kannski er tad sma symboliskt fyrir astandid her i kvennrettindamalum og vid tokum bara ta tatt i tvi.
Nu er eg sem se med trommuna i svortum ruslapoka og veit ekki hvernig eg a ad koma henni heim tvi ad vid megum bara  vera med tvaer toskur og vid forum ut med trjar, tetta verdur snuid nema ad vid segjum ad tromman se sports-gear sem er ta undantegid, en tad er ekki vist ad teir kaupi tad. Tegar vid keyrdum fra Transkei, svaedid sem Coffie bay er saum vid hina hlidina a S-Afriku i birtu. Nu voru allir gladir, hropandi og kallandi, krakkar i skolabuningum, fullt af konum ad bera mat sem taer keyptu hver af annari a vegakantinum. Kjuklinga kaupir madur a faeti, og ja stingur i plastpoka, nema hvad, og bara hausinn ut. Svo skellir madur heilum sekk af hvitkali a hausinn, heldur a krakkanum a bakinu og heldur a 10 litra vatnsbrusa i hinni hendinni. Hva, ekki nema svona 5-10 km. til naesta baejar. Litil stelpa i bleikum fotum ca. 4-5 ara rolti heim med litinn sykurpoka.... a hausnum. Silja tok fullt af myndum og krakkarnir elska hana enda gefur hun alla peningana sina ef saetir krakkar syngja jesulog og dansa. Jaeja her a fangelsisbarnum er skitkalt, fullt af arti folki, greinilega ekki sama tjodin og i Transkei, her er art-festival og tetta er haskolabaer. Her hanga hlutir i loftinu og fullt af kindahofuds-afsteypum. Nu er folkid farid ad syngja ariur ur operettum, sem svortu vinir okkar tarna i Kaffi floa hafa orugglega aldrei kynnst. Sma menningarmunur her og bara 400 km.

kvedja.
Asta i steininum.

14.juni

18. júní 2008 klukkan 12:12

loksins aftur i tolvu. Vid forum ekki aftur a bretti heldur skelltum okkur i apagardinn sem er risa gardur fullur af opum tarna fengum vid leidsogn og aparnir reyndu ad stela fra okkur ollu, myndavel og einn stokk upp a oxlina a mer eins og Niels hennar Linu. Svo i gard med fuglum tar voru allskonar bleikir pelikanar og skrautlegir p'afagaukar, einn vildi vera a oxlinni a silju og for ekki tadan fyrr en hann fann oxlina a mer. Forum til Port Elisabeth.
15. juni
Tetta er nu omurlegt farfuglaheimili, voda finn frontur og flott stofa en svo eldhus i rusli og drasli. Tveir svartir strakar fra Mozamic voru voda ljufir en vissu litid um Addo f'ilagardinn. Loksins gatu teir pantad fyrir okkur heilan dag i safari, tad var dyrt en vid attum eftir ad njota tess.  Adur forum vid i baeinn i Port Elisab. og tad var svona allt onnur Afrika en vid hofdum sed. Mikil fataekt, fullt af rusli allir ad reyna ad selja ter eitthvad, meira ad segja stodumaelavordur svidladi a mer, og hann het Lucky, hann var vissulega lucky ad hitta mig, halfvitann fra 'Islandi.
16. j'uni
Vid vorum s'ottar af midaldra hvitum kalli kl. 9 og keyrdum i filagardinn. Hann naestum eydilagdi daginn med tvi ad byrja 'a tvi ad halda fyrirlestur um hvad svarta folkid er miklir aumingjar. En eg akvad ad tegja svo mer vaeri ekki hennt ut. I filagardinum var frabaert filarnir komu ad vatnsbolinu og bodudu sig og vortusvin skoppudu a  milli. Tetta var fyrir hadegi, en vid fengum mat og ta forum vid i heimsokn til manns sem safnar slongum og skritnum dyrum. Vid Silja fengum margar slongur um halsinn to ad vid neitudum stadfastlega, ein var 2 og halfur m. a lengd og nidtung. hann syndi okkur skroltorma og cobrur,ta forum vid og skodudum krokodil og uglur, og falka. Eftir hadegi var Landrover og Scotcia tar saum vid fullt af dyrum, giraffakall buinn ad tyna kellu, 2 ljonastelpur sem voru bunar ad eta laerid af strut en hann var enn lifandi ad reyna standa upp medan taer sleiktu blodugar loppur. Impolur og buffaloar, strutar, og hyena med hvolp, sebrahestar og fullt af vortusvinum, flodhestarnir voru i turnum eftir myrkur en teir vildu ekki koma ur vatninu svo vid saum bara kjaftana tegar teir geispudu. Ta var kvoldmatur, hjartarkjot eldad a eldi og graenmeti ur risa trollapottum a eldi. Vardeldur og tetta var mjog gaman. Forumheim og svafum aftur a ljota heimilinu.
17. juni
Til hamingju med daginn.
tessi dagur var langur og frekar leidinlegur. Vid keyrdum i 8 klst. um 600 km og aetludum ad finna stad sem heitir Bulungula. Vid villtumst og keyrdum svo vonda vegi ad eg var ekki viss um hvort billinn kaemist tetta oskaddadur. Saum hraedileg torp og mikla fataekt, folk a ferdinni a vegakanti ad reyna ad hukka far. Skurar og geitur, daudur hestur i vegkantinum, madur a hesti i kurekafotum, gamall madur ad keyra annan i onytum hjolastol.  Born a tasunum ad fara heim ur skolanum. Tegar tad var ordid dimmt og farid ad rigna fundum vid gistihus og tar var eldur i eldstaedum ljos og matarlykt og kosy. Vid bokudum okkur inn i hvelli. Her er fullt af folki og stemming. Godur matur og vingjarnlegt folk. Sa ad her var haegt ad laera a trommur og jafnvel bua til sina eigin. Tetta var eitthvad fyrir mig, og silja samtykkti ad hanga her degi lengur.
18. j'uni
Trommugerd, var allan morguninn ad vinna vid trommuna. Teir aetludu ad lata mig nota sandpappir til ad forma trommuna. Eg spurdi hvort teir aettu ekki tjol eda rasp og eftir langa stund fannst verkfaeri sem eg var ekki viss hvort vaeri skeid, herdatre eda tjol, en tad var tjol og tannig gekk verkid betur. svo var ad skera geitaskinn, skera aegishjalminn i trommuna adur en eg setti resin yfir. Tetta vard ad gera i myrkri med afleitu sporjarni, en tokst samt. Gonguferd um tetta litla skrytna torp, komum inn i heimahus mjog skrytid, eitt rymi mottur a golfi og ekkert annad nema maladir veggir i skrautlegum litum. Eg held ad Snulla se andlega aettud hedan,her eru allir veggir maladir med myndum, inn a kl'osetti og uti, allsstadar. Keypti notada bok og skritinn fugl sem var svo illa gerdur ad malningin fauk af a heimleidinni. hER er lika haegt ad kaupa fallegar trommur og her er bolaprentun, og skartgripagerd. Forum a strondina i hifandi roki og tindum steina. Um kvoldid var kennsla a trommur ogvid maedgur sem erum svo taktlausar tokum okkur bara vel ut.

Hifandi rok og meiri rigning en eg hef sed adur. Eg ad vinna i trommu og Silja ad vinna eitthvad folk i Monopoly. Eg er nuna ad bida eftir ad rakvelablod komi i kaupfelagid svo eg geti rakad geitaskinnid. Kaupfelagid (eina budin) er allt afgreitt yfir bord og gegnum rimla. Konan a kassanum er tannlaus,hvit reykjandi og blotandi allan timan medan tu borgar. Jaeja timinn buinn. baejo
Asta i riiiiigningu.

J-bay

13. júní 2008 klukkan 18:36

Ja finn dagur, ég er ótrúlega stolt af tví ad hafa tekist ad skronglast nokkrar oldur uppistandandi og ekki fra tví ad ég sé ad verda húkkt á tessu sporti. Ég hef verid spurd um surf á Íslandi og ég gat bara ekki svarad tví svo ég fór og gúggladi tetta og viti menn haldidi ekki ad tad sé haegt ad surfa úti á Gróttu, Torlákshofn og Gardi og vídar. Brrr en tad verdur kalt ef madur gerir tad einhverntímann.
Síminn hennar SIlju hefur verid í tómu tjóni svo hún gerdi sér lítid fyrir og keypti einn notadann af afar svolum Mexikana á túsund kall (orugglega stolinn) og er bara nokkud lukkuleg med kaupinn. Vid forum aftur á strondina tar sem gódu surfararnir voru og horfdum og tókum myndir, sumir mjog gódir. Hér var heljar grill og tetta er eins og stor kommúna allir gladir saman frá morgum londum. Hér er fólk frá SA, Belgíu, Bretlandi, Frakklandi, Írlandi og svo vid Íslendingarnir, en vid erum teir fyrstu á tessu gistiheimili. Hér eru allir ad spjalla og í billjard og á leidinni á Mexíkóskan bar sem einhver svaka gód hljómsveit á ad spila, aetli madur skelli sér ekki med líka.
Kvedja Ásta

Fleiri letidagar í J'bay

13. júní 2008 klukkan 16:10
Halló Silja hér. Erum enn í J'bay og aetlum ad gista aftur. Hérna eru bara brettagaurar og gellur. Vid vorum ótrúlega duglegar í morgun og fórum í annan tímann okkar á brimbretti. Líklegast rétti stadurinn ef manni langar ad laera á brimbretti. Tetta er vist med tíu bestu stodum til ad surfa á. Prittígúdd. Aetlum ad leigja bretti og búning á morgun og nota thann dag til ad aefa okkur pínu. Sjáum sídan til hvad vid gerum naest eftir tad. Aetlum liklegast ad keyra sidan adeins austar. Sjáum bara til. Thad er adeins byrjad ad verda heitar hér og mamma bara búin ad brúnka sig pínulítid. Ég er enn eins og hvít raekja. Haha, vetur í Sudur Afríku...kjánalegt! Kaldasti vetur hingad til. Eníveis eitthver leikur ad byrja og allir ad grilla uppi svo aetli madur join-i ekki bara. Sakna Íslands ekkert meira en mús saknar kattar. (Flotta lýsing). Svo vid sjáumst bara eftir sem flesta daga, bless.
Hvíta raekjan kvedur.

Jeffreysbay - Je'bay

12. júní 2008 klukkan 19:22
Letidagur á Hrafnistu. Ég fann kommu á áid!
Kv. Ásta

Gódan daginn, viti menn hér erum vid á Ubuntu gistihúsi, dormity held ég ad tad heiti tar sem eru margar kojur og madur sefur í herbergi med fullt af odru fólki - og tad er iskalt herna! Aeji tad er nú eiginlega bara af tví ad tad er opid út fyrir hundana sem eru hérna. Algjor krútt. Nánari útskýring á tessari setningu frá mommu (''Letidagur á Hrafnistu'') Erum í Jeffreysbay sem er svona torp sem er adallega gamalt fólk í en samt fullt af odru fólki líka. Tetta er svona Hrafnistuthorp. O'g já j'sdfudsf Dagurinn í dag er bara búinn ad vera svona letidagur. Nenntum ekki (ég thordi ekki) í trjásveifludaemid í Tsitsikamma tannig vid ákvádum ad slappa bara af í dag. Ég reyndar sofnadi ótrúlega snemma í gaer, klukkan átta (sex ad íslenskum tíma) og vaknadi sídan klukkan átta. Algjor purka. Komum sem sagt hingad til Je'bay eftir morgunmat og kaffi/te á Tube n' Axe og spjall vid tannlausa-eldhusinnrettinga-feimna-svertingjann. Skruppum sidan á strondina, bordudum mat tar og slaeptumst eitthvad, horfdum á brettagaurana og svertingjafjolskyldu í fótbolta. Krúttlegt. Eyddum ollum deginum tarna og komum sidan hingad a Ubuntu og komum okkur fyrir, bordudum og horfdum a Surf-mynd. Endadi sidan hérna í tessari tolvu sem hefur yfirheitid ''free wireless internet'' fannst tad bara hljoma eitthvad fyrir mig. Tad er nú ekki margt og mikilvaegt ad blogga frá tessum degi. Hafid tad bara gott tví nú aetla ég ad fara blanda gedi vid fólk hér á tessu uggúbúggabuntugistiheimili. Sjaggabaggadaggabless. (Er ég ekki búin ad ná Afrikans vel?) :)
Silja

Tsitsikamma - Storm River

11. júní 2008 klukkan 18:13
Jaeja forum a sportbar i gaer og horfdum a sama leik og Gunnar var a, bara svona til ad vera med, og reyna sja hann i stukunni, ... Vid vorum ordnar halfskelkadar umhvort vid vaerum ad fara i lifshaettulegt daemi i brjaludum oldum, og Silja var ad hugsa um ad brjota a ser lopp til ad sleppa vid tetta to  ad hun aetti hugmyndina. En i morgun var bara agaett vedur og vid forum med finum kennara  a strondina. Tetta var ogo gaman, mer tokst naestum tvi ad standa en mest svona halfstandandi. Tetta vaeri eg til i ad gera a hverjum degi, risa oldur og madur bara svalur a bretti. Jaeja forum svo aftur a bakpoka gististadinn okkar tar sem Jeffrey hushaldari skipulagdi naestu daga med okkur og vid brunudum i Monkey land og Birds of Eden. Monkey land var alveg frabaert og einn svona Niels Linuapi stokk upp a oxlina a mer og reyndi ad stela myndavelinni. Saum alls konar primata, lika lemura og fuglarnir voru eins og i dotabud, bleikir og gulir og einn Kiki pafagaukur tok astfostri vid okkur og sat a oxlinni a okkurSilju til skiptis. Keyrdum svo i grenjandi rigningu hingad a frabaert pakpokaheimili i strakofa med arin og risahundi og aetlum ad vera her til morguns kannski lengur ef rignir. Er ad reyna ad fa silju i svona skogardaemi tar sem madur fer a reipum a milli trjatoppa en hun er eitthvad treg. Jaeja timinn buinn. kvedja 'Asta

Plettenbergbaii

10. júní 2008 klukkan 15:27

Aloha. Her erum vid komin i Plettenbergfloa. Tetta er akkurat stadurinn sem eg var ad leita ad. Her er bara svart folk, ekkert hvitt pakk... og allskonar basar uti med graenmeti og avoxtum. Allir alltaf rosalega vingjarnlegir. Alveg otrulegt, vid konnumst ekkert vid tetta heima a Islandi. Tad vantar tetta "hospitality" i islendingana. Forum i gaer i hestaferd. Aetlum ad geyma safariferdina tar sem strakarnir sem voru med okkur i hestaferdinni sogdu tessa safari-bilferd ekki skemmtilega. Geymum ljonin, giraffana og tad tangad til seinna. I hestaferdinni saum vid to nashyrninga, impolur, buffalo og allskonar skemmtileg dyr. Tad var fyndid (eda ekki fyndid) ad tegar vid vorum ad rida aftur til baka voru tveir nashyrningar i vegkantinum og teir aetludu ad radast a okkur. Tad var frekar hradur hjartslattur ta, en tegar strakarnir fra argentinu raku upp einhver herop ta hraeddust teir eitthvad sma og vid notudum taekifaerid og drifum okkur i burtu. Forum sidan i Wilderness National Park og gistum tar i litlum eftirlikingum af strakofum, sem var bara voda notalegt. Spiludum, drukkum raudrunnate og bordudum snakk&nuggat adur en vid forum ad sofa. Voknudum sidan klukkan 7-8 og gengum fra. Forum sidan i Kano-siglingu i 2-3 tima + gonguferd. Heldum ad tetta vaeri einhver smagongutur en gongustigurinn okkar blessadi helt afram lengra og lengra upp i fjallid og byrjadi ekki ad leita nidur a vid fyrr en vid vorum komin lengst upp. Flott utsyni en samt sma strengir i laerunum. Forum adan og fengum okkur pizzu og sidan ad leita okkur ad gistingu. Erum bara a chillinu og mamma var ad fa ser fyrsta kaffibollan i dag, klukkan her er 17:20. Hun var i mikilli kaffitorf (fekk ser meira ad segja kok med pizzunni, tad a madur ekki von a ad sja nema a svona triggja ara fresti). Aetlum nuna ad fara skrifa postkort og horfa a allt svarta sukkuladid (allavega eg).Hlæjandi

Silja

Ja tessi kaffibolli var sa besti i juni. Vid aetlum ad gista a einhverjum harlem- pakpokastad en tar er einmitt the international surfing school og tad er einmitt tad sem vid turfum a morgun, svona ef hardsperrurnar eftir rodurinn og labbid og hestbakid er ekki ad drepa okkur. Her i Plettenberg baai eru vist lengstu oldurnar i s-afriku tad tydir ad vanur surfari getur verid i 2 minutur a somu oldunni, vaaa tad verdur orugglega ekki vid, giska svona a 2 sek. og bumm hja okkur, en vid aetlum nu samt ad reyna. Jaeja nu er verid ad loka internetcafeinu og silja farin ad leita ad postkorti svo eg bid bara ad heilsa i bili.
Asta

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur